
Markþjálfunartímar
Markþjálfun er samtal sem hjálpar þér að átta þig á því hvað skiptir þig máli og hvað þú vilt gera í framhaldinu.
Þú kemur með það sem er efst á baugi hjá þér, hvort sem það er ákvörðun sem þú hefur frestað, markmið sem þú vilt vinna að eða löngun til að breyta einhverju í þínu lífi, hvort sem það er tengt einkalífinu eða starfinu.
Í tímunum hlusta ég, spyr spurninga og hjálpa þér að skoða stöðuna frá fleiri hliðum. Í sameiningu finnum við raunhæft næsta skref sem hentar þér og þínum aðstæðum.
Ég býð upp á markþjálfun, einnig fyrir fólk með ADHD, einhverfu og hinsegin einstaklinga (LGBTQ+).
Þú átt öruggt skjól hjá mér.

Markþjálfinn þinn
Ég heiti Anna Claessen og er alþjóðlega vottaður markþjálfi (ACC).
Ég hef einnig lært ADHD/einhverfu/LGBTQ+ og aðferðir eins og HAM/NLP/RTT/DBT/Gestalt ásamt meðvirkni-og sambandsmarkþjálfun. Með þeirri menntun vil ég geta stutt kúnna mína í hverju sem þau eru að ganga í gegnum.
Menntun:
2026 ADHD, LGBTQ+, Einhverfumarkþjálfun
2025 Somatic Healing og IFS partavinna
2024 Áfallajóga2023 Stafrænn markaðssérfræðingur
2022 DBT, Gestalt, Yin Yoga
2021 Hot Yoga kennaranám og Bandvefslosun
2020 : Hamingju-, meðvirkni- og sambandsmarkþjálfun , einkaþjálfaraskólinn, Absolute Training - og Yoga Nidra Kennaranám
2019 NLP, HAM (CBT) og RTT meðferðardáleiðsla NBI, Reiki og Gong tónheilun
2018 Markþjálfun frá HR
2012 Associates í Sönglist frá MI, L.A., USA2008 B.A: Fjölmiðlafræði
2004 Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands