
Þjálfarinn þinn
Anna Claessen
Þjálfunin hjá mér hentar sérstaklega vel byrjendum, þeim sem finnst óþægilegt eða kvíður að fara í ræktina, þurfa aukinn stuðning eða eru að byrja aftur eftir hlé.
Ég legg sérstaka áherslu á að styðja fólk sem er að jafna sig eftir kulnun eða meiðsli. Ég hef sjálf upplifað kulnun og veit hversu mikla orku það getur tekið að komast einfaldlega fram úr rúminu.
Heldur þunglyndi, kvíði eða önnur andleg vanlíðan aftur af þér? Hreyfing getur bætt líðan þína og ég er hér til að hvetja þig til að taka fyrsta skrefið. Þar sem ég hef sjálf glímt við kvíða og þunglyndi mæti ég þér af skilningi og styð þig með jákvæðni og hvatningu.
Við byrjum nákvæmlega þar sem þú ert í dag og lærum að njóta vegferðarinnar. Saman gerum við hreyfingu að einhverju sem þú getur hlakkað til, með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum sem auka styrk, hreyfigetu og liðleika. Við leggjum áherslu á að efla bæði líkamlega og andlega líðan þína.
Tímarnir fara fram í World Class (val á milli Smáralind, Laugar, Kringlan og Ögurhvarf).
ATH! verðið að eiga kort í World Class. Kaupa kort á www.worldclass.is

Menntun
2026 ADHD, LGBTQ+, Einhverfumarkþjálfun
2025 Somatic Healing og IFS partavinna
2024 Áfallajóga2023 Stafrænn markaðssérfræðingur
2022 DBT, Gestalt, Yin Yoga
2021 Hot Yoga kennaranám og Bandvefslosun
2020 : Hamingju-, meðvirkni- og sambandsmarkþjálfun , einkaþjálfaraskólinn, Absolute Training - og Yoga Nidra Kennaranám
2019 NLP, HAM (CBT) og RTT meðferðardáleiðsla NBI, Reiki og Gong tónheilun
2018 Markþjálfun frá HR
2012 Associates í Sönglist frá MI, L.A., USA2008 B.A: Fjölmiðlafræði
2004 Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands